Mín ljúfasta jólaminning

Mín ljúfasta jólaminning er líklega hvernig öll fjölskyldan lá í leti á jóladag.  Við vöknuðum seint og fengum okkur tartalettur í morgunmat.  Síðan spiluðum við ýmis spil sem við fengum í jólagjöf daginn áður.  Aðfangadagur var einnig mjög góður.  Í matin voru tartalettur í forrétt og svo í aðalrétt var hreindýr sem var allveg svakalega gott.  Í eftirrétt var svo möndluís.  Það var reyndar dálítill galli að ég borðaði svo mikið að ég var með magaverk til kl.1. Eftir það voru pakkarnir opnaðir. 

Jólin

Jólin eru mjög skemmtilegur tími.  Ég myndi segja að það væri aðallega hamingja en lítð af stressi og peningavandræðum.  Annars þá verð ég sjaldan stressaður þannig að það er ekkert nýtt.  Jólin eru mjög mikill hamingju tími þar sem fjölskyldan er öll saman og borðaður er góður matur.


Kökudagur í skóla

Í dag var kökudagur í skólanum þar sem krakkar komu með kökur í skólann.  Voru veitt verðlaun fyrir besta bragðið og besta útlitið.  Fékk ég verðlaun fyrir besta bragðið með Sunnu.  Ég bakaði appelsínuköku.

Á að hækka bílprófs aldurinn?

Nei, varla. Ekki eins og þeir sem  keyra eins og vitleysingjar verða eitthvað skynsamari eftir 1-2 ár.  Þeir myndu kannski bara keyra enn verr til að bæta upp fyrir tíman sem þeir misstu. Svo er það mjög ósanngjarnt fyrir þá sem keyra eins og á að keyra.  Ef einhver keyrir illa þá ætti löggan að taka af honum bílprófið í langan tíma, það yrði sanngjarnt fyrir þá sem keyra vel.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband